Næsta námskeið – Gott start í 4 vikur, hefst 12.maí

Hvernig líst þér á að næra þig extra vel fyrir sumarið með því að elda fallegan, litríkan og bragðgóðan mat sem þér líður vel af?

Við ætlum að elda sumarlegan og litríkan mat í fjórar vikur. Þú átt eftir að fá fullt af góðum hugmyndum fyrir sumarið af næringarríkum mat sem þér líður vel af.

Þetta er ekki neinn kúr sem við erum að fara í, heldur ætlum við einfaldlega að elda alvöru mat, nota mikið af grænmeti, mikið af góðum kryddum og allskonar góðgæti fyrir kroppinn.
En námskeiðið snýst um það að bæta inn góðum venjum, hugmyndum og uppskriftum til frambúðar.

Þú færð sendann innkaupalista og uppskriftahefti áður en við hefjumst handa.
Í hverri viku er lifandi útsending (1 klst) í lokaða FB hópnum sem þið fáið aðgang að og við eldum saman. Þú getur horft á útsendinguna á rauntíma eða seinna þegar það hentar þér betur. Ef þú nærð ekki að fylgjast með öllum “kennslustundunum” getur þú gert það síðar þar sem öll myndböndin eru aðgengileg í 2 mánuði eftir að námskeiði lýkur.

Uppskriftirnar innihalda bæði grænmeti, fisk, kjúkling og lambakjöt. Þú aðlagar matarplanið að því hvort þú borðir fisk og kjöt eða ekki. Allar uppskriftirnar í heftinu eru án glútens, mjólkur og sykurs (fyrir utan smá 70 % súkkulaði og smá kókospálamsykur). Þú ræður hvort þú ferð alveg eftir matarskipulaginu eða aðeins að hluta til.


Innifalið í námskeiðisgjaldinu:

– Uppskriftahefti með rúmlega 70 uppskriftum
– Innkaupalisti
– Tölvupóstur á hverjum virkum degi með fræðslu og hvatningu.
– Rafbókin „Sumarlegar uppskriftir“ (þú færð hana strax senda í staðfestingarpóstinum og getur því byrjað strax að leika þér í eldhúsinu)
– Lokaður Facebook hópur þar sem þú færð stuðning og getur spurt spurninga.
– 5 sýnikennslur sem dreifast yfir 4 vikur.
– Rafrænn fyrirlestur í upphafi og í lok námskeiðis.

Námskeiðið hefst með upphafsspjalli 12.maí og lýkur 11.júní með lokaspjalli

Sýnikennslurnar verða á þessum tíma en athugið að ef þessir tíma henta ekki er alltaf hægt að horfa seinna, um leið og sýnikennslan er komin inn á FB hópinn er hægt að horfa á hana hvenær sem er.

Sunnudagur 12.maí kl. 20.00-21.00 Upphafsspjall
Þriðjudaginn 14.maí kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Laugardagur 18.maí kl. 11.00-13.00 (undirbúningur fyrir mánuðinn, kínóa, múslí, flatbrauð, nammi ofl.)
Þriðjudaginn 21.maí kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 28.maí kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 4.júní kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 11.júní kl. 20.00-20.30 Lokaspjall

Námskeiðið kostar 19.900.- En þeir sem bóka snemma frá 20 % afslátt. (bóka þarf í síðasta lagi 5.maí)
Athugið að mörg stéttarfélög endurgreiða helming af námskeiðisgjaldinu.

Smelltu hér til að bóka: https://heilsumamman.com/product/gott-start-fyrir-sumarid-mai-2024/

Næsta námskeið verður skemmtileg áskorun

Matur hefur hækkað mikið og mörg heimili eru að reyna að finna ódýrari kosti í matarinnkaupum.
Margir eru þeirrar skoðunar að það sé dýrt að borða hollt en það þarf alls ekki að fara saman.

Mánudaginn 8.apriíl hefst þriggja vikna áskorun sem felst í því að búa til eitthvað næringarrík á hverjum degi. Á hverjum föstudegi munuð þið fá sendar uppskriftir fyrir vikuna í tölvupósti. Þetta verða einfaldar uppskriftir; drykkir, grautar, skálar, réttir sem henta vel í kvöldmat, súpur og sætindi. Þetta verður ekki flókin eldamennska, heldur allt einfalt og fljótlegt.

Áherslan verður eins og alltaf á gott start námskeiðinum á litríka fæðu sem er góð fyrir þarmaflóruna og á fæðu sem er góð fyrir blóðsykurinn.


Innifalið í námskeiðisgjaldinu:

– Uppskriftir fyrir vikuna sendar á föstudegi svo þú getir undirbúið þig um helgina
– Innkaupalisti á hverjum föstudegi
– FB póstur á hverjum virkum degi með stuttri fræðslu eða hvatningu.
– Lokaður Facebook hópur þar sem þú færð stuðning og getur spurt spurninga.
– Rafbókin „Sumarlegar uppskriftir“ er send til ykkar um leið þið hafið gengið frá greiðslu svo þið getið strax farið að leika ykkur í eldhúsinu og þurfið ekki að bíða þangað til námskeiðið hefst.

Smellið hér til að bóka pláss: https://heilsumamman.com/product/odyrt-og-naeringarrikt-3ja-vikna-askorun/

Áskorunin kostar 9.900.-
Athugið að mörg stéttarfélög endurgreiða helming af námskeiðisgjaldinu.

Fyrir ykkur sem hafið verið að koma á Gott start námskeiðin þá verða þetta að mestu leyti nýjar uppskriftir 🙂

Fyrsta námskeið ársins 2024

Takk fyrir samveru og samskipti á liðnu ári. Ég hlakka til að hafa fleiri námskeið á komandi ári og vonandi sé ég sem flesta.

Í janúar fara oft margir í heilsugírinn og vilja gera betur og eru jafnvel með eitthvað samviskubit eftir nautnalíf síðustu vikur ársins. Algengt er að farið sé af stað með ákveðnu offorsi sem er yfirleitt ekki leiðin til árangurs. Best er að setja raunhæf markmið og vera með raunhæfar væntingar en auðvitað er gott að nýta þennan kraft til góðs og huga vel um sig.

Heilsan okkar ætti ekki að vera átak heldur lífstíll og það er löngu sannað að skyndilausnir hjálpa ekki til. Það ætti að vera takmark hjá okkur öllum að borða almennt næringarríkan mat dagsdaglega þannig að þó að við förum í frí eða erum undir álagi erum við samt innan hins gullna meðalvegar. Námskeiðið Gott start á 4 vikum hefur hjálpað mörg hundruð einstaklingum síðustu 2 árin að bæta við rútínuna sína næringarríkum réttum og góðum venjum í þessum tilgangi. Á því námskeiði erum við ekki að einblína á það sem við viljum borða minna af – heldur fer athyglin öll á það sem við viljum borða meira af. Litríkt grænmeti, nægt prótein og góð grunnnæring. Matur sem er góður fyrir þarmaflóruna og blóðsykurinn.

Næsta Gott start námskeið verður haldið í 21.janúar -18.febrúar og hægt er að bóka það hér: https://heilsumamman.com/product/gott-start-januar-2024/

Smelltu á linkinn til að lesa meira um námskeiðið og athugaðu að þeir sem bóka snemma fá smá afslátt svo ekki missa af því. Í mars verður boðið upp á Gott start – framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja áframhaldandi fræðslu og stuðning.

Það er svo gott að næra sig vel og nauðsynlegt fyrir alla til þess að líða vel í eigin skinni, hafa næga orku og minnka líkur á lífstílssjúkdómum. Góð næring snýst ekki um kíló og útlit heldur um það að hugsa vel um eina líkamann sem við eigum þannig að hann virki vel og okkur líði vel.

Ég er einnig farin að bóka nammi námskeið fyrir fyrirtækja- og hópa svo ef það er eitthvað sem þér líst vel á fyrir þinn hóp eða fyrirtæki sendu mér þá línu á heilsumamman@gmail.com eða línu á messenger fyrir verð og lausa daga.

Næringarríkt nammi

Hér eru nokkur ummæli þátttakenda eftir Gott start námskeiðin.

Nammi námskeið haust 2023

Fastir liðir eins og venjulega þegar nóvember nálgast eru nammi námskeiðin sem hafa notið mikilla vinsælda síðustu árin. Nammi námskeiðin verða rafræn í ár eins og síðustu tvö árin. Ástæðan er einfaldlega sú að það hefur reynst svo frábærlega vel og þá skiptir búseta heldur ekki máli og allir geta verið með. Það er líka kostur að þátttakendur geta gert nammið algjörlega eftir sínum smekk.

Á dagskránni að þessu sinni er eitt námskeið sem verður miðvikudaginn 22.nóvember.

Hinsvegar eru ennþá laus 7 dagsetningar fyrir saumaklúbba og fyrirtæki sem vilja gera eitthvað skemmtilegt saman. En það að búa til nammi saman er einmitt frábær samvera og hópefli. Til að fá upplýsingar um lausar dagsetningar og verð fyrir hópinn þinn sendu fyrirspurn á heilsumamman@gmail.com eða sendu skilaboð

Smelltu hér til að bóka námskeið: https://heilsumamman.com/product/naeringarrikt-nammi-22-november/

Námskeiðin eru haldin í gegnum zoom. Nokkrum dögum fyrir námskeið færðu sendan innkaupalista, uppskriftir og undirbúningsplan þar sem kemur t.d. fram hvaða áhöld þú þarft að hafa tilbúin. Að morgni námskeiðisdags færðu sendan zoom-link til að komast inn á námskeiðið. Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel hingað til og þau sem hafa prófað að koma á námskeið og hinsvegar sækja rafrænt námskeið eru öll sammála því að þetta rafræna stendur upp úr. Það er bara svo þægilegt að geta verið heima í sínu eldhúsi á námskeiði. Þú þarft ekki að fara út í kuldann, redda barnapössun eða keyra langar vegalengdir. Á móti geturðu boðið fjölskyldunni að taka þátt með þér og átt svo allt gotteríið sjálf/ur þegar námskeiðinu lýkur.

Að lokum má nefna það að allt sem við búum til er glúteinlaust, mjólkurlaust og hentar þeim sem eru vegan. Alltaf er hægt að nota eitthvað annað en hnetur í uppskriftir ef þú vilt búa til hnetulaust nammi. Við notum mest döðlur til að sæta en í einstaka tilfellum hlynsíróp eða kókospálmasykur. Eini hvíti sykurinn gæti mögulega leynst í dökka súkkulaðinu.

Ég minni á að mörg stéttafélög greiða allt að 50 % tilbaka af námskeiðisgjaldinu.

Námskeiðið verður tekið upp og því hægt að horfa síðar á upptökuna ef tíminn hentar þér ekki.

Hlakka til að sjá þig ná namminámskeiði

Gott start í október

Hvernig líst þér á að næra þig extra vel í vetur með því að elda fallegan, litríkan og bragðgóðan mat sem þér líður vel af?

Vantar þig fleiri hugmyndir af meðlæti og millimáli?
Langar þig að elda mat sem viðheldur góðri blóðsykurstjórnun og minnkar sykurlöngun?
Langar þig að öðlast meiri sjálfsöryggi í eldhúsinu?
Langar þig að skipuleggja þig betur í eldhúsinu, nýta afganga og hætta allri matarsóun?

Þetta er ekki neinn kúr sem við erum að fara í, heldur ætlum við einfaldlega að elda alvöru mat, nota mikið af grænmeti, mikið af góðum kryddum og allskonar góðgæti fyrir kroppinn.
En námskeiðið snýst um það að bæta inn góðum venjum, hugmyndum og uppskriftum til frambúðar.

Þú færð sendann innkaupalista og uppskriftahefti áður en við hefjumst handa.
Í hverri viku er lifandi útsending í lokaða FB hópnum sem þið fáið aðgang að og við eldum saman. Þú getur horft á útsendinguna á rauntíma eða seinna þegar það hentar þér betur. Ef þú nærð ekki að fylgjast með öllum “kennslustundunum” getur þú gert það síðar þar sem öll myndböndin eru aðgengileg í 2-3 mánuði eftir að námskeiði lýkur.

Uppskriftirnar innihalda bæði grænmeti, fisk, kjúkling og lambakjöt. Þú aðlagar matarplanið að því hvort þú borðir fisk og kjöt eða ekki. Allar uppskriftirnar í heftinu eru án glútens, mjólkur og sykurs (fyrir utan smá 70 % súkkulaði og smá kókospálamsykur). Þú ræður hvort þú ferð alveg eftir matarskipulaginu eða aðeins að hluta til.


Innifalið í námskeiðisgjaldinu:

– Uppskriftahefti með rúmlega 70 uppskriftum
– Innkaupalisti
– Tölvupóstur á hverjum virkum degi með fræðslu og hvatningu.
– Rafbókin “Súpur, pottréttir og fleira góðgæti”
– Lokaður Facebook hópur þar sem þú færð stuðning og getur spurt spurninga.
– 5 sýnikennslur sem dreifast yfir 4 vikur.
– Rafrænn fyrirlestur í upphafi og í lok námskeiðis.

Námskeiðið hefst með upphafsspjalli 3.október og lýkur 1.nóvember með lokaspjalli

Sýnikennslurnar verða á þessum tíma en athugið að ef þessir tíma henta ekki er alltaf hægt að horfa seinna, um leið og sýnikennslan er komin inn á FB hópinn er hægt að horfa á hana hvenær sem er.

Sunnudaginn 8.október kl. 12.00-14.00 (undirbúningur fyrir mánuðinn, kínóa, múslí, flatbrauð, nammi ofl.)
Þriðjudagin 10.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 17.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 24.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)
Þriðjudaginn 31.október kl. 18.00-19.00 (Eldum saman kvöldmat)

Námskeiðið kostar 19.900.- En þeir sem bóka snemma frá 20 % afslátt. (bóka þarf í síðasta lagi 25.september)
Athugið að mörg stéttarfélög endurgreiða helming af námskeiðisgjaldinu.

Smelltu hér til að bóka : https://heilsumamman.com/product/gott-start-oktober-2023/

Námskeið haust 2023

Það er allt að komast í rútínu hjá flestum eftir gott sumar. Eins og sumarið er notalegt með öllum sýnum lystisemdum er alltaf ákveðið gott þegar allt er komið í fastari skorður. Yfirleitt leyfum við okkur meira yfir sumarið en þegar fer að hausta viljum við velja hollari kost. En stundum gengur það mis vel, það getur verið vegna þess að þarmaflóran er farin úr jafnvægi og öskri á áframhaldandi sykur og sukk eða bragðlaukarnir okkar eru bara orðnir svo góðu vanir að þeir kalla á áframhaldandi gotterí. Ef þú tengir við þetta sjáumst við vonandi á næsta Gott start námskeiði.

Heilsan okkar ætti ekki að vera átak heldur lífstíll og það er löngu sannað að skyndilausnir hjálpa ekki til. Það ætti að vera takmark hjá okkur öllum að borða almennt næringarríkan mat dagsdaglega þannig að þó að við förum í frí eða erum undir álagi erum við samt innan hins gullna meðalvegar. Námskeiðið Gott start á 4 vikum hefur hjálpað mörg hundruð einstaklingum síðustu 2 árin að bæta við rútínuna sína næringarríkum réttum og góðum venjum í þessum tilgangi. Á því námskeiði erum við ekki að einblína á það sem við viljum borða minna af – heldur fer athyglin öll á það sem við viljum borða meira af. Litríkt grænmeti, nægt prótein og góð grunnnæring. Matur sem er góður fyrir þarmaflóruna og blóðsykurinn.

Næsta Gott start námskeið verður haldið í október, 3.október – 1.nóvember, og hægt er að bóka það hér: https://heilsumamman.com/product/gott-start-oktober-2023/

Smelltu á linkinn til að lesa meira um námskeiðið og athugaðu að þeir sem bóka snemma fá smá afslátt svo ekki missa af því. Í nóvember verður boðið upp á Gott start – framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja áframhaldandi fræðslu og stuðning.

En margir hafa þegar farið í gegnum Gott start prógrammið og langar bara að fá bara smá pepp. Aðrir eru ekki alveg til í svona mikla bindingu; sýnikennslur í hverri viku og póstar á hverjum degi. Kannski er einfaldlega of mikið að gera. Þess vegna er ég mjög spennt fyrir nýjasta námskeiðinu- Gott start eftir sumarið – 3ja vikna áskorun sem hefst 11.september og stendur yfir í þrjár vikur. Áskorunin felst í því að búa til eitthvað næringarríkt á hverjum degi og í hverri viku koma nokkrar nýjar uppskriftir til að velja úr; salat, súpa, grautur, drykkir eða sætindi. Léttir, fljótlegir og einfaldir réttir.

Þetta er ekki nein skyndilausn heldur bara smá spark í rassinn eftir sumarfríið til að halda áfram að næra sig vel í vetur.

Hér er hægt að lesa meira um og bóka sig í áskorunina: https://heilsumamman.com/product/gott-start-eftir-sumarid-3ja-vikna-askorun/

Þeir sem hafa komið áður á Gott start námskeið fá áskorunina á smá afslætti, svo ef þú hefur komið áður en ert ekki inni í áframhalds FB hópnum sendu mér þá línu á messenger eða póst á heilsumamman@gmail.com og þú færð sendan afsláttarkóða til að nýta þér.

Það er svo gott að næra sig vel og nauðsynlegt fyrir alla til þess að líða vel í eigin skinni, hafa næga orku og minnka líkur á lífstílssjúkdómum. Góð næring snýst ekki um kíló og útlit heldur um það að hugsa vel um eina líkamann sem við eigum þannig að hann virki vel og okkur líði vel.

En svo er nú varla hægt að fara í gegnum lífið án sætinda og því verða nammi námskeiðin á sínum stað – en þau verða auglýst síðar.

Ég er þegar farin að bóka fyrirtækja- og hópa nammi námskeið fyrir haustið svo ef það er eitthvað sem þér líst vel á fyrir þinn hóp eða fyrirtæki sendu mér þá línu á heilsumamman@gmail.com eða línu á messenger fyrir verð og lausa daga.

Næringarríkt nammi

Ég hlakka til að hafa þig með á námskeiði í haust.

Hér eru nokkur ummæli þátttakenda eftir Gott start námskeiðin.